Um aldamótin 1900 voru fyrstu kvikmyndirnar gerðar. Þær voru bæði svarthvítar og afar stuttar. Síðar urðu myndirnar lengri og þá var leikin tónlist undir. Enn var ekki hægt að talsetja myndirnar svo samtöl voru skrifuð upp. Kvikmyndirnar breyttust verulega þegar loks var hægt að tala inn á þær og atvinnuleikarar fóru að leika í myndunum. Fyrsta lélega kvikmyndin heitir Reefer Madness og kom út árið 1936. Svo fóru að koma enn fleiri og lélegri kvikmyndir.
Ein versta mynd sögunnar er talin vera The Room sem var gerð af Tommy Wiseau. Hún var lélega skrifuð, illa leikin og söguþráðurinn var heldur bragðdaufur. En þó að hún sé léleg er ekki þar með sagt að hún sé leiðinleg. Svona myndir geta einmitt verið mjög fyndnar af því hversu lélegar þær eru, og getur það verið góð skemmtun að horfa á lélega mynd.