Hvað er léleg kvikmynd? „Léleg“ er afar vítt hugtak í þessu samhengi þar sem kvikmyndir eru alls konar. Sumar lélegar kvikmyndir eru langar og leiðinlegar. Aðrar fá virkilega lága einkunn frá gagnrýnendum en græða tugi milljarða á nokkrum vikum. Svoleiðis kvikmyndir hljóta að hafa eitthvað skemmtanagildi fyrst fólk borgar til að horfa á þær. En ef kvikmyndirnar eru skemmtilegar er þá réttlátt að kalla þær lélegar?
Kvikmyndagagnrýnendur sjá hundruð kvikmynda á hverju ári og þurfa að gefa þeim einkunn sem er hægara sagt en gert. Það er erfitt að gera upp á milli kvikmynda sem höfða ekki til sömu áhorfenda. Þær kvikmyndir sem höfða mest til gagnrýnenda eru alvarlegar myndir með djúpu handriti og úthugsaðri upptöku. Eftir nokkurn tíma fær maður leið á þessum myndum og fer að leita að einhverju skemmtilegra.
Í rannsókn okkar komumst við að því að margar kvikmyndir eru svo lélegar að þær verða skemmtilegar. Þær eru hlægilega illa leiknar og skrifaðar. Við hlæjum og gerum grín að því að svona léleg kvikmynd taki sjálfri sér svo alvarlega. Við ræddum við Gunnar Theodór Eggertsson, kvikmyndagagnrýnanda, og við spurðum hann út í svona myndir. Hann hélt því fram að lélegar kvikmyndir verði skemmtilegastar þegar þær eru lélegar óviljandi. Í fyrstu átti the Room að vera alvarlegt drama en hún endaði sem fyndnasta kvikmynd áratugarins samkvæmt mörgum. Tommy Wiseau bar sig vel þegar hann heyrði af skoðunum fólks. Í stað þess að segja áhorfendum hver ætlunin hafi verið sagðist hann hafa reynt að gera kvikmyndina fyndna. Þetta gladdi fólkið því það fékk enn fleiri ástæður til að gera grín að Tommy. Þegar áhorfendur hlæja að lélegum kvikmyndum er það ekki vegna sniðugra og vel skrifaðra brandara heldur er skemmtanagildið fólgið í mistökum annarra.