Í góðum kvikmyndum eru sex meginatriði sem skipta máli. Það eru handrit, persónur, leikur, tímasetning, hljóð og kvikmyndataka. En í fjölmörgum kvikmyndum eru þessi atriði ekkert sérstaklega vel gerð, sem þýðir að kvikmyndin verður léleg. Í vel heppnuðu handriti eru nokkur atriði til staðar. Það eru átök, söguþráður, samtöl og boðskapur. Til þess að kvikmyndapersónur verða skemmtilegar þurfa þær að hafa einhverja galla og einhverja þráhyggju. Tónn er einnig mjög mikilvægur í kvikmyndum því ef tónninn er alltaf á flakki er myndin öll í óreiðu.
Í lélegri - fyndinni mynd getur verið að tóninn sé alltaf á flakki. Til að persónur í kvikmynd verði trúverðugar þurfa þrjú atriðiað vera til staðar þ.e. leikurinn, sannar tilfinningar og eðlilegar hreyfingar. Robert De Niro er mjög frægur leikari vegna þess að hann getur gert þessa hluti rosa vel. Tímasetning er einnig mjög mikilvæg í kvikmyndum en það er uppröðun senanna, uppbygging kvikmyndarinnar og senanna. Einnig er hraðinn mjög mikilvægur en ef hann er góður þá er tímasetningin góð. Hljóðið er mikilvægt og gerir það mikið fyrir myndina ef hljóðið í umhverfinu er gott. Einnig eru hljóðbrellur mikilvægar eins og tónlistin. Stundum er tónlistin frumsamin og oft er tónlistin mikilvæg til að setja tóninn í myndinni. Lýsing, sviðsetning, búningar, leikmunir og upptaka á myndavél eru mikilvægir hlutir og flokkast allir undir myndefni.