Sem afurð vildum við gera stuttmynd í tveimur pörtum. Annar parturinn ætti að vera gerður eins og góð kvikmynd en hinn eins og léleg. Við ætluðum að endurgera sturtu atriðið úr Psycho en þegar við byrjuðum að taka upp komumst við að því að gera góða mynd er mun erfiðara en maður heldur. Og af því við reyndum að gera góða stuttmynd sem varð léleg er þetta í rauninni eins og skemmtilegu-lélegu myndirnar sem við rannsökuðum. Njótið:
Í okkar atriði er næstum engin spenna því áhorfendur fá ekki tíma til að hugsa um atburðina. Við sýnum andlitið á morðingjanum, sem er ekki nærri jafn skuggalegt og í upprunalega atriðinu þar sem morðinginn er andlitslaus. Þar sem við höfðum ekki atvinnuleikara og -kvikmyndagerðamenn komu tökurnar okkar illa út. Klippingin og lýsingin okkar var ófagleg, við höfðum ekki aðgang að alvöru sviðsetningu. Við skiljum núna að það er mun erfiðara að gera góða kvikmynd en það lítur út fyrir að vera.